07 декември 2007

Biskup fær rússneskan biskupsstaf að gjöf

Timur Zolotuskiy afhendir Karli Sigurbjörnssyni biskupsstafinn.

Timur Zolotuskiy, prestur rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar á Íslandi, færði Karli Sigurbjörnssyni, biskup Íslands, að gjöf biskupsstaf við sameiginlega helgistund í Dómkirkjunni í gær.
Með gjöfinni vildi rússneska rétttrúnaðarkirkjan votta biskupi og Þjóðkirkjunni þakklæti sitt fyrir stuðning við starfsemi safnaðarins á Íslandi.
Biskupsstafurinn er svonefndur té-bagall, eins og biskupar Austurkirkjunnar nota. Slíkur bagall frá 11. öld fannst á Þingvöllum fyrir fimmtíu árum. Er hann staðfesting þess að við upphaf kristni á Íslandi hafi verið hér á landi biskupar frá Austurkirkjunni.